KM Logo

Íbúðarhúsnæði



Garður

Garður nær frá Rafnkelsstaðabergi að innanverðu og út á Skagatá þar sem gamli vitinn stendur. Í daglegu tali er honum skipt í Inn- og Út-Garð en milli þeirra er Gerðahverfið. Mikil uppbygging á sér stað í Garði en íbúafjöldi er um 1500 manns. Nýlega var tekin skóflustunga að nýju hverfi þar sem gert er ráð fyrir um 195 íbúðum. Garðurinn er frábær staður til að njóta útivistar hvort sem um er að ræða gönguferðir, berjatínslu í móunum, golf, sund eða nestisferð í skrúðgarðinn. Skólastarf er öflugt í Garði en grunnskólinn Gerðaskóli var settur í fyrsta sinn þann 7. október 1872 og er hann þriðji elsti skólinn á landinu sem starfað hefur óslitið frá stofnun. Leikskólinn Gefnarborg var stofnaður af Kvenfélaginu Gefn og tók til starfa 10. júní 1971. Í Garði er einnig mjög gott tómstundastarf fyrir unga sem aldna en í Auðarstofu er aðstaða fyrir tómstundir eldri borgara og félagsmiðstöðin Elding er til húsa í Sæborgu.

Skoða: Garður



Grindavík

Grindavík er ört vaxandi sveitarfélag á suðurströnd Reykjanesskaga um 50 km frá Reykjavík. Íbúar voru 2.382 þann 1. desember 2007. Fallegt bæjarstæði við rætur Þorbjarnarfells, nálægð við gjöful fiskimið, ferðamannastaður og heilsulind eins og Bláalónið sem og öflugt íþróttastarf með ungu fólki, allt þetta hjálpast að við að skapa gott mannlíf í framsæknu bæjarfélagi. Grindavík er einn öflugasti útgerðarbær landsins með fjölda báta og togara og sterkum sjávarútvegsfyrirtækjum. Í bænum er öll nauðsynleg þjónusta heilsugæsla, tannlæknir, verslanir, löggæsla, skrifstofa Sýslumanns.

Skoða: Grindavík



Reykjanesbær

Íbúar í Reykjanesbæ eru nú 13.686 (apríl 2008) en bæjarfélagið er meðal þeirra fimm stærstu á landinu. Í Reykjanesbæ er rekinn frístundaskóli fyrir nemendur í 1. - 4. bekk þar sem æfingagjöld íþróttafélaganna og akstur á æfingar er innifalið í gjaldi. Skólinn er sá eini sinnar tegundar á landinu og hefur fyrirkomulagið vakið athygli annarra bæjarfélaga. Reykjanesbær er íþróttabær og því rökrétt að þar sé rekin Íþróttaakademía í samvinnu við Háskólann í Reykjavík. Vatnaveröld í Reykjanesbæ er tilvalin skemmtun fyrir alla fjölskylduna með 50m innilaug og yfirbyggðum vatnaleikjagarði.

Skoða: Reykjanesbær





Einbýli í Horsens, Danmörk
Til sölu einbýli í Horsens í Danmörku.

Tilboð

Skoða nánar hér

5 33 44 55
Senda vefpóst vegna tilboða hjá okkur
Augýsa hjá okkur
fasteignir.is - stærri og ítarlegri fasteigna-leitarvefur


© Fasteignasala Reykjaness 2008 | Notkunarskilmálar | Lagalegur fyrirvari
QEX | FlexCMS